Þriðja þáttaröðin um blaðakonuna Láru, fjölskyldu hennar og samstarfsmenn. Hér er um að ræða sex þátta dramaseríu þar sem aðalsögusviðið er ritstjórn dagblaðsins Pósturinn á Grensásveginum. Pósturinn er æsifréttablað og í fyrstu þáttaröðinni byrjaði Lára að vinna hjá blaðinu og komst
frá fyrsta degi í heilmikinn hasar. Í þessari þáttaröð reynir harðsvírað glæpagengi að ná yfirráðum í undirheimum Reykjavíkur sem einkennist af kynþáttahatri og ofbeldi. Togstreitan milli blaðamannastarfsins og foreldrahlutverksins er alsráðandi hjá Láru og ekki bætir úr skák þegar Alda, dóttir hennar, tekur upp náin kynni við einn úr glæpagenginu.
Með aðalhlutverk fara Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Björn Thors, Þorsteinn Bachman og Helgi Björnsson.