Golf á þriðjudagskvöldum í sumar

Þriðjudagskvöldin eru golfkvöld á Stöð 2 Sport í sumar. Sýnt verður frá öllum mótunum í Eimskipsmótaröðinni auk þess sem Logi Bergmann og Þorsteinn Hallgrímsson stýra nýjum og skemmtilegum golfþætti sem kallast Tvöfaldur skolli. Einnig verða sýndir tveir þættir um eitt fjörugasta golfmót sumarsins, Herminator-Invitational, sem knattspyrnukappinn Hermann Hreiðarsson stendur fyrir árlega í Vestmannaeyjum.

Í sumar verður bein útsending frá hápunkti golfsumarsins, Íslandsmótinu í höggleik, sem fram fer á Hellu helgina 28. – 29. júlí. Þá verða einnig sérstakir þættir um Einvígið á Nesinu þar sem bestu kyflingar landsins taka þátt í golfmóti með skemmtilegu fyrirkomulagi og einnig þáttur frá Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ þar sem efnilegustu kylfingar landsins taka þátt í samskonar móti.

Af erlendu golfi verður sýnt beint frá stórmóti í Þýskalandi helgina 28. – 29. Júlí sem kallast Schuco Open en þar er útvöldum kylfingum boðið til leiks og meðal keppenda eru: Bubba Watson (sem sigraði á The Masters), Martin Kaymer, Dustin Johnson, Miguel Ángel Jiménez, Ian Poulter, Edoardo Molinari, Geoff Ogilvy, Peter Hanson, Henrik Stenson og Colin Montgomerie.

GOLFÞÆTTIR Á ÞRIÐJUDÖGUM
29. maí    Eimskipsmótaröðin (1:6)
5. júní      Tvöfaldur skolli (1:7)
12. júní    Eimskipsmótaröðin (2:6)
19. júní    Tvöfaldur skolli (2:7)
26. júní    Eimskipsmótaröðin (3:6)
                 Íslandsmótið í holukeppni
3. júlí       Herminator-Invitational (1:2)
10. júlí    Herminator-Invitational (2:2)
17. júlí     Tvöfaldur skolli (3:7)
24. júlí     Tvöfaldur skolli (4:7)
31. júlí     Eimskipsmótaröðin (4:6)
                 Íslandsmótið í höggleik
7. ágúst   Tvöfaldur skolli (5:7)
14. ágúst Tvöfaldur skolli (6:7)
21. ágúst Eimskipsmótaröðin (5:6)
28. ágúst Tvöfaldur skolli (7:7)
4. sept.   Eimskipsmótaröðin (6:6)

Hér erum við líka

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash