Sýnishorn

Sýnishorn af Gunnar Nelson UFC

Næsti þáttur

Gunnar Nelson mun mæta Jorge "The Sandman" Santiago í UFC-keppninni á Wembley þann 16. febrúar næstkomandi.

Um þáttinn

Gunnar Nelson mun mæta Jorge "The Sandman" Santiago í UFC-keppninni á Wembley þann 16. febrúar næstkomandi.  

Umfjöllun um keppinaut Gunnars:  
Það verður heldur betur við ramman reip að draga hjá Gunnari en Santiago þessi á 35 bardaga að baki og þar af hefur hann unnið 25.  

Santiago er með svart belti í brasilísku jui-jitsui og hefur unnið 10 bardaga með rothöggi en 13 með uppgjöf. Edwards á hins vegar 10 bardaga að baki og Gunnar ellefu.  Santiago, sem er 31 árs, hóf feril sinn hjá UFC árið 2006. 

Hann vann fyrsta bardagann en tapaði næstu tveim. Þá gerði hann samning við önnur bardagasambönd þar til hann snéri aftur í UFC árið 2011. Hann tapaði tveimur fyrstu bardögunum en hefur unnið tvo síðustu, báða í fyrstu lotu.

Santiago keppti í milliþungavigt, næsta þyngdarflokki fyrir ofan Gunnar,og varð meistari hjá Sengkoku bardagasambandinu árið 2009. Titilbardagi hans gegn Kazuo Misaki var valinn besti bardaginn af vefsíðunum Sherrd og Inside MMA.

Staðsetning:  Wembley Arena í London
Lýsandi:  Bubbi Morthens
Umfjöllun á Vísir.is
Gunnar Nelson á Wikipedia
Heimasíða Gunnars Nelsonar

Hér erum við líka

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash