Stærsti íþróttaviðburður ársins verður í leiftrandi háskerpu á Stöð 2 Sport í janúar. Allir leikir Íslands verða sýndir í beinni útsendingu ásamt völdum leikjum með öðrum liðum. Þorsteinn J. mun fylgja strákunum okkar til Spánar og fyrstu þættirnir verða sendir út frá höllinni þar sem leikir Íslands fara fram. Þannig verður hann í beinu sambandi við leikmenn, þjálfara og aðstoðarfólk og skilar stemmningunni heim í stofu.
Leikir Íslands:
Ísland - Rússland 12. janúar
Chile - Ísland 13. janúar
Makedónía Ísland 15. janúar
Ísland - Danmörk 16. janúar
Ísland - Katar 18. janúar