Um þáttinn

Breaking Bad er dramatísk, spennandi og bráðskemmtileg þáttaröð sem slegið hefur í gegn um víða veröld og hefur hlotið fjölda verðlauna. Efnafræðikennarinn og fjölskyldumaðurinn Walter White fékk að vita að hann ætti aðeins tvö ár eftir ólifuð. Hann ákvað að tryggja fjárhag fjölskyldu sinnar með því að nýta efnafræðiþekkingu sína og hefja framleiðslu og sölu á eiturlyfjum. Þar með sogaðist hann inni í hættulegan heim eiturlyfja og glæpa.

EMMY-VERÐLAUN ÞRJÚ ÁR Í RÖÐ
Aðalhlutverkið í þáttunum leikur Bryan Cranston sem margir kannast við sem pabbann í gamanþáttunum Malcolm in the Middle. Hann hefur hlotið Emmy-verðlaunin 2008, 2009 og 2010 fyrir frammistöðu sína í aðalhlutverkinu en 2010 hlaut Aaron Paul, sem leikur félaga hans í dópsölunni, einnig Emmy-verðlaun fyrir aukahlutverk í þáttunum.

Drama, spenna
Þáttaröð: 3
Fjöldi þátta: 13
Aðalhlutverk: Bryan Cranston, Anna Gunn, Aaron Paul, Dean Norris, Betsy Brandt, RJ Mitte, Bob Odenkirk, Giancarlo Esposito, Jonathan Banks
Síða þáttanna hjá AMC
Um þættina á Wikipedia
Um þættina á IMDB

Hér erum við líka

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash