Loksins eru komnir glænýir þættir með gulustu fjölskyldu í heimi. The Simpsons hefur fyrir alllöngu komist á spjöld sögunnar sem langlífustu gamanþættir í bandarískri sjónvarpssögu auk þess auðvitað að vera langlífasta teiknimyndaserían. Það sem meira er þá hefur Simpson - fjölskyldan sjaldan eða aldrei verið eins vinsæl og einmitt um þessar mundir, þökk sé bíómyndinni sem sló rækilega í gegn. Því er viðeigandi að hefja sýningar á 22 glænýjum þáttum í þáttaröð númer tuttugu.