- Simon Cowell sagði skilið við bæði Idol og bresku útgáfuna af The X-Factor til að helga sig þessum nýja þætti.
- The X-Factor verður stærsti þáttur Fox-sjónvarsstöðvarinnar fyrir áramót og spáð meira vinsældum en nokkrum öðrum þætti.
- Þátturinn verður á dagskrá tvö kvöld í viku í Bandaríkjunum og verða báðir þættirnir sýndir á föstudögum á Stöð 2 – innan við sólarhring eftir að honum lýkur í Bandaríkjunum.
Tvímælalaust stærsti sjónvarpsþáttur komandi vetrar í Bandaríkjunum og sá þáttur sem beðið er með hvað mestri eftirvæntingu. Hér mætir Simon Cowell aftur til leiks eftir brotthvarfið úr American Idol – nú með sinn eigin þátt sem sló m.a. Idol algjörlega við í vinsældum þegar hann hóf fyrst göngu sína í Bretlandi. Þættinum svipar til Idol að miklu leyti nema að því undanskildu að hér mega allir taka þátt og sýna sönghæfileika sína því aldurstakmark er ekkert og sönghópar er einnig heimilt að taka þátt.
Í The X Factor gegna dómarar ennþá veigameira hlutverki en í Idol því þeir keppa innbyrðis með því að taka að sér að leiða hvern hóp fyrir sig – einn dómari með yngri einsöngvarahópinn, einn með eldri einsöngvarhópinn og svo einn dómari með sönghópana. Dómnefndin er skipuð valinkunnu liði en auk Cowells eru í dómnefnd tónskáldið og söngkonan Demi Lovato, upptökustjórinn, lagahöfundurinn og tónlistarmógúllinn L.A. Reid og söngkonan umdeilda, Britney Spears.