Um þáttinn

Go On eru gamanþættir með alvarlegu ívafi. Matthew Perry leikur sjarmerandi og sjálfsöruggan útvarpsmann sem verður fyrir því að missa konuna sína í hörmulegu slysi. Hann er ekki tilbúinn til að takast á við sorgina og eftir stutt frí telur hann sig tilbúinn til að snúa aftur til vinnu. Á yfirborðinu virðist áfallið ekki hafa haft mikil áhrif á hann en yfirmaður hans neitar að hleypa honum aftur í loftið nema hann leiti sér aðstoðar og skrái sig í hópmeðferð fyrir fólk sem einnig er að glíma við missi. Hann hefur enga trú á meðferðinni en mætir í von um að komast sem fyrst í útvarpið aftur. Sú skoðun hans á eftir að breytast þegar hann kynnist öllum þeim ólíku manneskjum sem sækja tímana með honum.

Í STUTTU MÁLI
- Ný gamanþáttaröð með Matthew Perry í aðalhlutverki
- Höfundur þáttanna, Scott Silveri, var einn af aðalframleiðendum Friends
Gaman
Þáttaröð: 1
Fjöldi þátta: 13
Aðalhlutverk: Matthew Perry, Laura Benanti, Julie White, Suzy Nakamura, Allison Miller, Tyler James Williams og John Cho
Heimasíða þáttarins hjá NBC
Um þáttinn á Wikipedia
Um þáttinn á IMDB

Hér erum við líka

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash