Martin Scorsese framleiðir þennan frábæra og vandaða þátt sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Boardwalk Empire gerist í Atlantic City í kringum 1920, við upphaf bannáranna í Bandaríkjunum, þegar sala áfengis varð ólögleg um allt land og mörg glæpagengi spruttu fram. Árin í kringum 1920 voru merkileg fyrir margar sakir, fyrri heimsstyrjöldinni var lokið, Wall Street var á mikilli uppleið, konur fengu kosningarrétt, útvarpið kom til sögunnar og unga fólkið réð ríkjum.
Aðalsöguhetjan er Enoch "Nucky" Thompson, sem réði lögum og lofum í Atlantic City. Framleiðandinn og handritshöfundurinn Terence Winter á heiðurinn af framleiðslunni en hann hefur þáttaraðir á borð við The Sopranos á ferilskránni. Boardwalk Empire unnu meðal annars til sjö Emmy-verðlauna á þessari virtustu verðlaunahátíð í sjónvarpsiðnaðinum á síðasta ári.