Fréttakonan Helga Arnardóttir fékk einróma lof fyrir umfjöllun sína um Geirfinnsmálið í fyrra og hlaut íslensku blaðamannaverðlaunin fyrr á árinu fyrir vel unnin störf. Í þessarri glænýju íslensku þáttaröð tekur Helga til umfjöllunnar fleiri mannshvörf hér á landi undanfarna áratugi. Meðal þeirra mála sem greint verður frá er hvarf tveggja unglingsdrengja á Suðurnesjum snemma á tíunda áratugnum, hvarf Valgeirs Víðissonar og ótrúleg saga Esterar Gavin, sem og fleiri mál. Talað verður við aðstandendur þeirra sem hverfa, lögreglumenn og fólk sem tók þátt í leit á sínum tíma.
Hér eru á ferðinni magnaðir þættir sem láta engann ósnortinn.