Um þáttinn

Þættirnir fjalla um vinkvennahóp sem elur manninn í draumaborginni New York og áhorfendur fá að fylgjast með aðstæðum þeirra, samskiptum við hitt kynið, baráttunni við starfsframann og fleira. Skvísurnar eru allar á þrítugsaldri og fyrir hópnum fer Hannah Horvarth sem leikin er af Lenu Dunham. Sú er jafnframt hugmyndasmiður þáttanna, handritshöfundur þeirra og framleiðandi auk þess sem hún leikstýrir fimm af þeim 10 þáttum sem fyrsta þáttaröðin mannar.

Þættirnir hafa fengið lofsamlega dóma og þykja ferskur blær í flóru gamanþátta í Bandaríkjunum.

UMSAGNIR BLAÐA
„Ávanabindandi allt frá fyrsta þætti“ New York Magazine
„Hrár, frumlegur, vandaður og brjálæðislega fyndinn“ Time
„...einhver frumlegasti, ferskasti og best gerði þáttur síðustu ára“ The Hollywood Reporter
Gaman
Þáttaröð: 2
Fjöldi þátta: 10
Aðalhlutverk: Lena Dunham, Jemima Kirke, Allison Williams, Zosia Mamet og Adam Driver.
Síða þáttarins hjá HBO
Um þáttinn á Wikipedia
Um þáttinn á IMDB
Um þáttinn á TV.com

Hér erum við líka

Þú þarft að hafa Flash uppsett til að geta horft á sýnishorn og myndbönd.

Sækja Flash