Frábær spjallþáttur þar sem Jon Stewart fer á kostum. Hann þykir einn fyndnasti og beittasti spjallþáttastjórnandinn um þessar mundir og mörgum er minnisstætt þegar hann var kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2006. The Daily Show er gamanþáttur, spjallþáttur og pólitískur ádeiluþáttur. Enginn þáttur hefur verið með beittara og fyndnara háð um bandaríska pólitík síðasta áratuginn eða síðan The Daily Show fór fyrst í loftið á Comedy Central stöðinni árið 1996 og er það mál manna að hann hafi aldrei verið betri og ferskari en einmitt um þessar mundir.
Í STUTTU MÁLI
- Valinn besti þátturinn í sínum flokki á níu síðustu Emmy-hátíðum
- Alls hlotið 16 Emmy-verðlaun