Dallas snýr aftur. Fáir þættir hafa átt meiri vinsældum að fagna í íslenskri sjónvarpssögu og Dallas. Í fyrra var þráðurinn tekinn upp að nýju og nú halda ævintýri Ewing-fjölskyldunnar áfram.
Frændurnir Christopher og John Ross bítast enn um yfirráðin í fjölskyldufyrirtækinu Ewing Oil og hafa tekið upp erjur feðra sinna um þessi sömu málefni. Að vanda blandast inn í ástir og afbrýði, svik og baktjaldamakk og gera þáttaröðina afar spennandi. Þetta voru síðustu Dallas-þættirnir sem Larry Hagman náði að bregða sér í hlutverk hins alræmda J.R. en hann lést á meðan á tökum á þáttaröðinni stóð, eftir áralanga baráttu við krabbamein.