Sunnudaga
Golfarinn er skemmtileg þáttaröð um allar hliðar golfiðkunnar, allt frá kennslu og þrauta til viðtala við kylfinga á öllum aldri. Í þáttunum í sumar munum við fylgjast með vinum keppa sín á milli, sjáum byrjendur stíga sín fyrstu skref í golfinu og gefum áhorfendum góð ráð hvernig megi bæta megi leik sinn. Þekktir kylfingar segja frá sinni uppáhalds golfholu auk þess sem við kynnum okkur öll nýjustu tæki og tól sem hjálpa okkur að lækka forgjöfina. Umsjónarmenn þáttarins eru Hlynur Sigurðsson og Inga Lind Karlsdóttir.
Stöð 2+
Kynntu þér málið
Úrval og efnisframboð á Stöð 2+ hefur aldrei verið meira auk þess sem margar af vinsælustu íslensku þáttaröðunum eru hjá okkur.
Sjá nánar